Að gefa sér tækifæri

Það er alltaf gaman að velta fyrir sér lífinu.  Flest fáum við okkar tækifæri a.m.k. ef við höfum augun opin.  En hvað er tækifæri? Hvað finnst okkur vera tækifæri?  Hvernig koma þau til okkar, eða hvernig sækjum við þau? 

Það má segja að lífið sjálft sé tækifæri.  Tækifæri til að lifa og fá að taka þátt í lífinu.  En það er ekki sjálfsagt og þess vegna ber að vera þakklátur fyrir hvern dag og gleðjast yfir hverju ári sem okkur er gefið.  Hver afmælisdagur er hátíð og þess vegna tækifæri til að gleðjast og gera mikið úr honum. En það er líka hægt að glopra tækifærunum úr höndum sér og það í stórum stíl.  Og jafnvel að missa af sjálfum sér. 

Í mínum huga er tækifæri eitthvað sem við sjáum sem ávinning.  Eitthvað sem gefur okkur möguleika, möguleika til vaxtar, þroska, gleði eða framþróunar á einhvern hátt.  Það er auðvitað mjög einstaklingsbundið hvað fólk sér sem tækifæri, hvað fólk velur og hvernig lífi fólk vill lifa.  Það sem einum finnst tækifæri finnst öðrum sóun eða enginn ávinningur af.  Eitt er víst að við eigum flest fleiri tækifæri í vændum en okkur grunar.  Jú, það sem ég meina er það að við þurfum að vera vakandi.  Þurfum að kunna að gefa og þiggja og sjá hvað lífið hefur upp á að bjóða.  Kunna að grípa gersemar lífsins á hverjum degi, í stóru OG smáu.  Tækifærin koma ekki alltaf á silfurfati, stundum þarf að hafa fyrir þeim en önnur og líklega mörg hoppa inn í líf okkar án þess að við sjáum þau.  Þeim er sólundað í blekkingu og blindu græðginnar og jafnvel þeirri vanþakklátu hugsun sem við líklega flest dettum í að vilja eitthvað annað, meira og betra en við höfum.   En sennilega þegar öllu er á botninn hvolft er það sem við höfum og eigum stórkostlegt og dásamlegt......en illa nýtt.

Það vill líka stundum gleymast að í lífinu höfum við VAL.  Við getum hreinlega oft valið að vera hamingjusöm eða valið (oftast ómeðvitað) að vera óhamingjusöm, neikvæð og leið.   Við getum valið að vera fúl á mánudagsmorgni og nenna ekki inn í vinnuvikuna.  Getum valið þegar gardínurnar eru dregnar frá að fúlsa yfir veðrinu.  Getum valið að vera fúl yfir því að vera sein og þurfa að skafa af bílnum  Getum valið að vorkenna okkur fyrir að þurfa að vakna að helgarmorgni í vinnu.  Getum valið að að dæsa yfir því að þurfa að hlaupa 3 hæðir.  Við getum valið... það er bara spurning hvað við VELJUM AÐ VELJA, sjálfsvorkun og hlutverk fórnarlambsins eða að taka lífinu og verkefnum dagsins sem ögrun, gjöf og tækifæri.  Ef við temjum okkur gleði og trúum því að lífið sé fullt af tækifærum verðum við hamingjusöm.  Hamingjan verður okkur töm og ósjálfrátt förum við að sjá lífið fullt af tækifærum og gleði og um leið öðlast innri ró til að takast á við það þegar lífið er ögrandi.

 KissingHvert er ÞITT VAL??LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég las þetta var the Secret. Rétt hugarfar hjá þér , fær mann til að hugsa. Jákvætt hugarfar og maður nennir öllu =) ****

Sandra Sif Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 04:05

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Valið mitt er að gera það mesta úr lífinu. Flott grein.

Rúnar Már Bragason, 22.10.2007 kl. 20:35

3 identicon

Hæ elsku Þóra mín,

 kíkti á þessa skemmtilegu síðu þegar ég sá nafnið þitt í mogganum !!! 

Nú verð ég fastur gestur á síðunni þinni  

 Kv. Hjördís á Vífó C",) 

Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 21:51

4 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Frábær grein hjá þér, og ýtir svo sannarlega við manni en Secretið er tóm della og kukl, og best að halda sig við gömlu góðu Pollýönnuspekina og gott bænalíf

Guðrún Sæmundsdóttir, 23.10.2007 kl. 22:02

5 identicon

Hæ elsku Þóra ofsalega góð grein hjá þer! ég er stolt að af þekkja svona yndislega manneskju eins og þig !! og tala nú ekki um að vera skyld henni, þú ert yndisleg elsku Þóra mín!

 Stórt knús til þín og ykkar allra

bið að heilsa

kv Hildur og Co 

Hildur María (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 01:05

6 identicon

Hæ hæ Þóra frábær lesning hjá þér og vekur mann til umhugsunar. Kveðja Gréta

Gréta Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 13:27

7 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Góð pæling,  hef sjálf leitast við bæði í meðbyr og mótbyr að sjá sóknarfæri í stöðunni. 

Vilborg Traustadóttir, 11.11.2007 kl. 21:43

8 identicon

jákvæðasta blogg sögunnar!forréttindi að vinna með slíkri manneskju,þó að salatið gleymist:)Þóra!stundum held eg að eg hafi skrifað þetta:)eins og talað úr mínu hjarta,eða þannig:)

Palli (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 05:51

9 Smámynd: Þóra I. Sigurjónsdóttir

Takk elsku Palli minn, voðalega er þetta fallega sagt

Hurru! Nú bara er það sko risasalatskammtur í vinnuna næst hehehehe

see you

Þóra I. Sigurjónsdóttir, 25.11.2007 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband