22.6.2007 | 07:38
Áttu lausn?
"Mamma ég er með tvær lausnir" hvora myndir þú velja, sagði dóttir mín ánægð einn daginn. Það var ekki laust við að ég væri bara stolt af 8 ára kellunni minni, jæja hún hafði þá ratað eitthvað í gegn þessi umræða okkar af og til um lausnir á málum og að hugsa í lausnum. Hmhmhm og kannski fínt að minna mömmuna sjálfa stundum á þetta Það er rosalega mikilvægt að venja sig á að hugsa í lausnum en ekki hindrunum, þótt það geti stundum verið fja...... erfiðara, ef maður er í "ofurkrísu" En samt sem áður... það bregst ekki að það virkar. Ef við lítum á björtu hliðarnar, horfum á vanda dagsins sem verkefni til að leysa, náum við miklu meiri stjórn á hlutnum heldur en ef við finnum þessu allt til foráttu og festumst í því hve voðalegt það nú væri ef þetta færi nú svona eða hinsegin. Það er öruggt að maður þarf alltaf að hafa fyrir því að ná árangri, og það er gaman. Gerum raunhæfar væntingar, sjáum fyrir okkur lausnina eins og við viljum hafa hana og þá förum við ósjálfrátt að vinna að þessari lausn. Allt hefst þetta í huganum sem við getum ótrúlega mikið stjórnað. Ef þú þarft að gera mjög krefjandi verk sem er að buga þig, horfðu þá á þig leysa það í huganum með bros á vör og fulla(n) af eldmóði. Og ef þér líður allllllls ekki þannig þá hugsaðu þér að þér líði þannig og finndu þá líðan streyma inn í æðarnar ÆFINGIN skapar MEISTRANN. Tölum vel við okkur og hvetjum okkur til dáða, eins og við myndum tala við besta vin okkar, ekki myndum við brjóta hann niður. Horfðu á þá sem þér finnst gera vel og nýttu þá sem þínar fyrirmyndir, fagnaðu með henni(honum) og lærðu af viðkomandi. Það er BANNAÐ að pirrast á annarra velgengni!!! Hugsum í lausnum og þegar sigrinum er náð mundu þá eftir að FAGNA OG UMBUNA ÞÉR. Jú, þú átt það skilið!! Og það er allt í lagi að sleppa sér og fagna af innlifun, hoppaðu og settu allt í botn ef þú þarft. Við þurfum ekki alltaf að vera svona bæld og hrædd við að fagna eigin sigrum. Það er heilbrigt að sleppa sér stundum og heilmikil útrás
Hugsa í LAUSNUM....ÞAÐ ER MÁLIÐ byrjaðu NÚNA
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)