NÚNA!

"Veistu mér er að takast þetta með NÚ-IÐ Þóra" sagði vinkona mín við mig um daginn.  "Æðislegt!" sagði ég, búin að vera að æfa mig í þessu nokkuð lengi, og bara orðin býsna góð í því.  Já og bara loka fyrir fortíð og framtíð líka... svei mér þá... og NJÓTA NÚSINS, auðvitað skipuleggjum við tímann en ekki óþarfa áhyggjur.  Höfum ekki áhyggjur af því sem svo aldrei verður.  "Pældu í því" sagði hún...."við erum saman núna, lifum núna og bara það er ekkert sjálfsagt!" "Svona leið örugglega Edison þegar hann fann upp ljósaperuna!", hélt hún áfram alveg yfir sig ánægð með þessa nýju uppgötnun.  "Vá til hamingju", sagði ég...  "Heyrðu höldum upp á þetta" segi ég... Wizardalltaf tilbúin að halda upp á allt...WinkGrin  Við þögðum um stund og horfðum hvor á aðra... vá hvað er gaman hjá okkur vorum við sammála um... stukkum út í bíl... og brunuðum út í gleðina... Rigning! Hvað með það... það er allavega sól hjá okkur, við erum sko áhyggjulausar yfir veðrinu.  Jájá, og komnar með svo fína stjórn á okkar eigin áhyggjum....Halo

 Tvær konur spókandi sig og að æfa sig í áhyggjuleysi... er þetta ekki dásamlegt!Wink

"LIFUM Í NÚINU"


Þolirðu H-vítamín?

 

"Æi hún er bara gömul og ljót, keypt á útsölu í Hagkaup" sagði daman þegar henni var svo vel hrósað fyrir það hvað hún liti vel út rauðu peysunni.

"Maður gutlar svona við þetta og einstaka sinnum tekst vonandi vel til" sagði maðurinn þegar honum var hælt fyrir málverkið sem hann hafði lagt mikla vinnu í og var óborganlega fallegt hjá honum.

Það er eins og sumir séu hræddir við H-vítamínið Hrósið.  Af hverju?  Erum við svona vön að fá gagnrýni og bara kunnum ekki að bregðast við jákvæðum staðhæfingum um okkur sjálf?

Væri ekki nær að segja einfaldlega TAKK frekar en að láta aumingjans manneskjuna sem er að hrósa okkur þurfa að hlusta á heilmikla ræðu um það hvað við séum nú örugglega ómöguleg og tortryggja hrósið.

 Hrós er ekki það sama og smjaður og yfirborðsmennska.  Það að gefa hrós verður að koma BEINT frá hjartanu og við verðum að geta þegið það líka beint frá hjartanu.  Það er bannað að hrósa ef maður meinar það ekki, þá hefur það engan tilgang.

 Þegar við sjáum það góða í kringum okkur og látum fólk finna þegar okkur líkar vel í stað þess að finna allt að öllu líður okkur sjálfum betur og öllum í kringum okkur.

Næst þegar við hrífumst af einhverju hjá öðrum látum þá þann hinn sama vita af því, í stað þess einungis að hugsa það.

Yfirgengilega neikvætt fólk getur breyst úr örgustu þrösurum yfir í hið elskulegasta fólk, í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.

 

HRÓSUM OG BROSUM

 

 

 

 


Tilfinningastellingar

Hvað er nú það! 

Hef svosem aldrei heyrt þetta orð áður en þá er bara að búa til nýyrði!  Við mæðgurnar alla vega áttum frábæran dag þegar við uppgötvuðum þetta....  líka frábært að uppgötva þetta með makanum eða hvað....hóst hóst....

Við semsagt (mæðgurnar sko) ákváðum að prufa að túlka alls konar tilfinningar með því að flækja okkur saman í alls konar stellingar með og án augnsambands.  Við fíluðum þetta alveg í botn.  Við túlkuðum, ástina, kærleikann, vináttuna o.fl. o.fl.  Þetta var svo gefandi og yndisleg stund sem ég átti með dóttur minni.  Þetta hleypir af stað  "mjúkum hugsunum"  og bægir frá allri svartsýni og neikvæðni, og dagurinn verður yndislegur og pirringur bara á bak og burt og hugurinn fyllist þakklæti.  Voða væmið og æðislegt.

.....................svo er bara að prófa þetta með makanum líka............gæti endað MJÖG VEL..........

SKORA Á YKKUR AÐ PRÓFA


Hví ekki að skella sér í það núna?

"Sæææææl!! Ekki átti ég von á að þú myndir hringja ég ætlaði að hringja í þig eftir kvöldmat" sagði lasburða kona sem ég þekki þegar ég hringdi í hana í dag.  Reyndar er mjög erfitt oft að skilja hana í síma.  Hún var yfir sig glöð.  "Og hafðu það gott sagði hún í lok símtalsins... og þakka þér innilega fyrir að hringja í mig."

Ég kom úr vinnunni settist inn í stofu hjá fjölskyldunni og sagði:  "Gerum öll eitt góðverk í dag!

"Við mæðgurnar ræddum um það hvað það myndi gefa þeim sem "fyrir því yrði" og okkur ef við myndum nú gera svosem eins og eitt góðverk í dag.

Dóttirinn ákvað að gefa vinkonu sinni gjöf, ég ákvað að hringja í þessa vinkonu mína og eiginmaðurinn ákvað að hringja í lasburða mann sem hann þekkir.  Dóttirin sagðist líka ætla að gleðja sjálfa sig, það má auðvitað ekki gleyma því, góður punktur hjá henni.

Eftir heimspekilegar umræður um góðverk komumst við að því að auðvitað myndu þessi góðverk GLEÐJA AÐRA og um leið fengjum við að samgleðjast öðrum og "fá hlýtt í hjartað" eins og 8 ára dóttirin komst að orði.

Niðurstaðan semsé sú að það gerir öllum gott að gera góðverk.

 BROSUM OG GERUM EITT GÓÐVERK Í DAG............

....OG HÖLDUM ÞVÍ SVO ÁFRAM.....


Lífið er dásamlegt...

 

Ég rakst á þessa yndislegu setningu í dag.  Hún hafði verið skrifuð upp á töflu í vinnunni hjá mér, og setningin starði á mig og ég á setninguna...hvernig ætli standi á því?

En svona er þessi dæmalausa setning:

 "Ég ELSKA ÞIG ekki bara fyrir það hvernig þú ert heldur hvernig ég verð í návist þinni."

Elskumst undir sólinni.


Þú ert frábær!

 

DRAUMAR OG MARKMIÐ

"Ég mun aldrei geta þetta", sagði Allan Jones við félaga sinn, daginn áður en honum bauðst að taka þátt í söngvakeppni -  sem þó hann hafði alltaf dreymt um. Hann ákvað ÞÓ að láta til leiðast fyrir áeggjan vina og kunningja sem vissu af hans íðilfögru rödd.  "Allt í lagi, ég geri þetta fyrir þau", hugsaði maðurinn og hóf að undirbúa keppnina, "það væri svo fáránlegt að gera þetta ekki eftir alla þessa hvatningu."  Hvern morgunn fylltist hann kvíða yfir deginum og æfingunum sem framundan voru en lét sig hafa það að mæta án nokkurrar trúar á að honum tækist að komast í verðlaunasæti HVAÐ ÞÁ að vinna.

"Nei ég get þetta ekki" hugsaði hann í hvert sinn sem hann hóf upp raustina en reyndi þó að láta á litlu bera.

Loks rann upp keppnisdagurinn, sólríkur og fagur, en inn á milli var eins og ský drægi fyrir sólu og það hellirigndi, í nokkrar mínútur.

"Bölvað veður, af hverju þarf veðrið að vera svona... einmitt þennan dag?"

 

Loks rann upp úrslitastundin og úrslitin voru tilkynnt...  "Vinningshafinn er: Monica Lee!

 

Monica gekk hnarreist inn sviðið, með sinni alkunnu geislandi framkomu sem einkenndist af öryggi þakkaði fyrir stuðninginn og hóf að syngja vinningssönginn í annað sinn.

Allan tímann hugsaði Allan um það hvers vegna hann hefði ekki unnið eins og hún.  Jú, víst hafði hún fallega rödd, EN hún skransaði nú á sumum tónum sem Allan hafði ekki gert. Hann hugsaði um alla þá reynslu sem hann hefði í söng, allt sem hann hafði lært í samanburði við þá litlu reynslu sem Monica hafði.  En þrátt fyrir þetta klappaði salurinn og gleðin skein úr áheyrendunum...

Daginn eftir sá Allan viðtal við Monicu í borgarblaðinu.  Blaðamaðurinn spjallaði ítarlega við söngkonuna og spurði hana hverju hún vildi þakka það að hún vann og nyti almennt velgengni.  Monica svaraði:  "Í æsku var mér kennt að líta á hvern dag sem GJÖF fulla af tækifærum, tækifærum sem biðu mín BARA ef ég tæki eftir þeim og gripi þau.  Þegar ég sá auglýsinguna um keppnina ákvað ég að ég ÆTLAÐI að taka þátt og vonaði auðvitað að ég ynni og innst inni vann ég stöðugt að því allan undirbúningstímann. Ég ákvað að byggja upp eldmóð hjá mér, hlustaði á hvetjandi tónlist, las bækur og hlustaði á diska með mannbætandi og uppbyggjandi efni og efni sem virkjar eldmóðinn.  Ég sofnaði á kvöldin með jákvæðar hugsanir, og þegar ég dró frá glugganum á morgnana hugsaði ég alltaf "yndislegur dagur" sama hvernig viðraði.  Ég hugsaði vel um sjálfa mig, leyfði mér að vera sorgmædd þegar ég þurfti þess og leyfði mér að þiggja aðstoð ef ég þurfti hennar með.  Fyrst af öllu passaði ég að missa ALDREI sjónar af draumnum.  Ég hugsaði þetta sem köllun og fór leiðina í huganum, ég skrifaði niður áætlun og skoðaði hana daglega.  OG ÉG ÁKVAÐ AÐ FRAMKVÆMA ...

ÞORA AÐ FRAMKVÆMA DRAUMINN.  Í æsku hafði mér verið kennt að þolinmæði, mannkærleikur, þrautseigja og sveigjanleiki væru gildi sem ég yrði að temja mér ef ég ætlaði að ná árangri. Á leiðinni þurfti ég að ganga í gegnum hindranir sem urðu mér enn meiri hvatning til að halda áfram og sigrast á þeim.  Ég endurskoðaði markmið mín reglulega og passaði að MISSA ALDREI SJÓNAR af því hvert ég ætlaði.  Ég æfði mig og æfði og ákvað fyrir hverja æfingu að hún yrði mér heilladrjúg, jafnvel þótt mér fyndist ég glötuð.  Ég gerði mistök en nýtti mér þau til vaxtar, og verðlaunaði mig reglulega.  Þannig gladdi ég sjálfa mig.   Ég sá mig fyrir mér upp á sviði þar sem ég tók á móti verðlaununum og söng lagið.  Þegar ég var ein heima tók ég í höndina á fullt af fólki í huganum -og lék þessa athöfn það- og þakkaði fyrir stuðninginn, ég sá í hvaða fötum ég yrði úrslitadaginn,... og í þeim var ég í gær.

 

Að lokum vil ég fá að þakka fjölskyldu minn fyrir stuðninginn og fyrir að hafa ALLTAF hvatt mig áfram og kennt mér hvernig maður lætur sér dreyma og vinnur að sínum draumum þangað til þeir rætast.  Ég vil þakka þeim fyrir að kenna mér að gera markmið og ná þeim á mínum forsendum, fyrir að hrósa mér, fyrir að fylla hug minn jákvæðum hugsunum, fyrir kærleikann, góðvildina og það að leyfa MÉR að vera ég sjálf

OG að hlusta á MIG með virðingu...

á öllum aldri.

Ég veit hvert ég stefni

og veit að ég ætla

og ég veit að þetta geta allir.

 

Farðu út og líttu í kringum þig og ég er viss um að innan 30 mínútna muntu sjá eitthvað sem gefur þér tækifæri

EF þú hefur augun opin, kíktu!

"If you can dream it you can do it" (Walt Disney)

....JUST DO IT"

 

Ef þig getur dreymt, geturðu framkvæmt...

stökktu NÚNA,

og gerðu

ÞINN draum að veruleika,

bæði í starfi og einkalífi.

 

Allan:

Neikvæðar hugsanir

Vantar sjálfstrú

Gera fyrir aðra

Tekur ekki sjálfstæða ákvörðun

Kvíði

Dregur sig niður

Sér neikvætt í "öllu" sbr. Veðrið

 

  •  leiddi sig sjálfur að því að vinna ekki

Monica:

Hnarreist, örugg (fake it if you can't make it)

Framkoma

Kurteisi

Sjálfstrú í botni

Smitandi (salurinn)

Leiðin:

Viðhorf - dagurinn gjöf

Grípa tækifærin

Ætla-Taka ákvörðun

Framkvæma

Byggja upp eldmóð

Uppbygging

Bækur CD

Jákvæðar hugsanir í svefn og að morgni

Hugsa vel um sig

Finna tilfinningar vinna með þær

MISSA ALDREI SJÓNAR AF DRAUMNUM

Læra af mistökunum

Gera drauminn raunverulegan í huganum

og í verki

Þakka

 

"If you can  DREAM IT

you can DO IT"


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband