Þakklæti

Í dag eru 12 ár síðan yndislega móðir mín lést.  Ég þakka Guði fyrir að hafa gefið mér hana sem móður.  Ég þakka fyrir að hafa átt hana í barnæsku og uppvextinum þótt ég hafi verið ung þegar hún lést.  Það eru ekki allir svo heppnir að eiga móður sem barn.  Mikið óskaplega sakna ég hennar mikið, og sérstaklega mikið nú og síðastliðin ár.  Móðir mín Unnur Guðrún Jóhannsdóttir var góð kona. Hún var rík af réttlætiskennd, fórnfús, falleg og dugleg.  Hún sá vel um heimilið og okkur dætur sínar þrátt fyrir hálfa heilsu.  Hún var forkur til verka, þrautseig og komst það sem hún ætlaði sér.  Lífið var henni oft erfitt það vissi ég, en hún stóð alltaf upp teinrétt og sterkari.  Hún kenndi mér margt sem ég er þakklát fyrir.  Ég þakka allar dásamlegu stundirnar okkar saman, ég að læra hún að fylgjast með, ég að spila eða syngja á tónleikum og hún að hlusta,  við að drekka saman heita mjólk og borða suðusúkkulaði með.  Móðir mín sýndi mér mikla ást og hlýju, og fyrir það verð ég ævinlega þakklát.

Gegnum sára sorgina er ég full þakklætis og gleði yfir að hafa átt þig fyrir móður, elsku hjartans mamma mín, takk fyrir allt.

Njótum þess sem lífið hefur upp á að bjóða

full þakklætis fyrir það sem okkur hefur verið gefið,

mér var gefin góð móðir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku besta vinkona, mikið finnst mér gaman að kíkja á bloggið þitt í fyrsta skiptið, og ekki síst  að sjá þessa fallegu kveðju frá þér til móður þinnar.

Tengingin milli móður og dóttur er jú svo sérstök, og man ég vel eftir Unni móður þinni sem glæsilegri geislandi konu.

Ég man hana sem fyrirmyndarmóður ykkar systra, algerlega umvefjandi og hlýja móður. Ef ég væri spurð hvað það væri sem ég man helst við hana, myndi ég örugglega svara: Hún var svo mikil mamma.

 Ég sendi þér mínar hlýjustu kveðjur Þóra mín á þessum tíma, og !!

Spennandi framundan hjá þér, margt að gerast!! 

Þín Hulda. 

hulda björk (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 20:10

2 identicon

Ég sakna móður sárlega mikið.. hugsa til hennar á hverjum degi. Móðir var svo góð og mikil sjálfstæð kona og frábær fyrirmynd mamma þó ég fór frá henni var bara aðeins 4 ára gömul.
Hvil í fríði elskulega besta móðir. Ég elska hana í minu heilu hjartað og hún er stóra ástin min.
Þin systir Árný

Árný (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband